Viðskiptaskilmálar

Viðskiptaskilmálar

Viðskiptaskilmálar fyrir vefverslun Þeydal ehf.

Þessi skilmáli gildir um sölu á vöru og þjónustu Þeydal ehf til neytenda. Skilmálinn, sem staðfestur er með staðfestingu á kaupum, er grunnurinn að viðskiptunum.

Viðskiptaskilmálar vegna kaupa á vöru og þjónustu í gegnum vefverslun Þeydal hlýta almennum lögum um neytendasamninga ásamt lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu.

Seljandi / Kaupandi

Hér eftir er seljandi, Þeydal ehf, Klyfjasel 15, 109 Reykjavík, kennitala 651102-3080 virðisaukaskattsnúmer 77308. Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar óviðkomandi þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Sjá nánar  í persónuverndastefnu okkar.

Gildistími

Skilmálar þessir gilda frá 1. ágúst 2021.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

Pöntun

Pöntun er bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun. Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar. Kaupandi hefur rétt á að rifta kaupum samkvæmt lögum um neytendakaup, sjá nánar í grein 11.

Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einnig ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun. Frávik frá pöntun og pöntunarstaðfestingu skal túlkað sem nýtt tilboð frá seljanda sem að hægt er að afþakka eða samþykkja. Kaupandi hefur einnig rétt til að láta upprunalega pöntun gilda svo lengi sem hún er í samræmi við það sem seljandi bauð upp á.

Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum. Vöruúrval getur verið mismunandi milli vefverslunar og verslunnar. Ennfremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu ásamt upplýsingum um hvað gæti mögulega hentað í staðinn. Kaupandi fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.

Verð

Verð geta breyst hjá seljanda vegna verðbreytinga birgja. Verðhækkanir sem verða eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu. Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega. Þar er tekinn fram allur kostnaður við pöntun s.s. þjónustu, sendingu o.s.frv. Aðeins sértilfelli geta haft með sér aukakostnað eftir pöntunarstaðfestingu. Sem dæmi má nefna eru bilanir, vírusar, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.

Greiðslufyrirkomulag

Hægt er að inna greiðslu af hendi með greiðslukorti. Tekið er við öllum kortategundum sem Rabyd býður upp á, Mastercard, Visa, Amex, Diners, CUP og JCB. Þegar greitt er með greiðslukorti er upphæðin skuldfærð við staðfestingu pöntunarinnar í vefverslun. Ef greiðsla berst ekki, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni.

Einnig er hægt að greiða með banka millifærslu. Pöntun fer ekki af stað fyrr en greiðsla hefur borist. Pöntunarnúmer skal notast við sem tilvísun.

Þegar fullbúið granít eldstæðisborð eða granít borðplata er pöntuð getur biðtími verið allt að 3 vikur.   Í þeim tilfellum þarf að greiða staðfestingargjald 30% af kaupverði og 70% áður en vara er afhent.  

Einnig bjóðum við upp á kreditkorta greiðsludreifingar.  

Reikningsupplýsingar:

Banki: 0526, Höfuðbók: 26, Reiknings númer: 550, Kennitala: 651102-3080.

Afhending

Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef varan er uppseld. Allar skemmdir á vörum af hendi flutningsaðila eru á þeirra ábyrgð og að fullu bætt gagnvart viðskiptavini. Skemmdir eftir að vara hefur verið afhent er á ábyrgð kaupanda.

Ábyrgð

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samkvæmt vörulýsingu og ógallaðar. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu. Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 10 daga. Eftir 10 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda.

Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni. Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að tilkynningin berist innan 10 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Réttur til að fá galla bættan er í 2 ár. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.

Ábyrgðarskilmálar vegna kaupa á vöru og þjónustu í gegnum vefverslun Þeydal hlýta almennum lögum um neytendasamninga ásamt lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu.

Ábyrgð til einstaklinga: 2 ár

Ábyrgð til fyrirtækja: 1 ár

SKILARÉTTUR

Skilaréttur á vörum er 30 dagar frá dagsetningu kvittunar fyrir kaupum. Viðskiptavinum býðst full endurgreiðsla sem jafngildir upphaflegu kaupverði samkvæmt kvittun.

Skil á vörum er háð eftirfarandi skilyrðum:

  • Að framvísað sé kvittun fyrir kaupum á viðkomandi vöru
  • Að varan teljist í söluhæfu ástandi
  • Að allir aukahlutir sem fylgja eiga vörunni séu til staðar
  • Að ekki hafi verið átt við vöruna, bætt við eða hlutir teknir af
  • Að ekki sé búið að breyta útliti vörunnar með málningu eða öðrum yfirborðsefnum
  • Að varan sé ekki sérpöntuð eða sérsniðinn að þörfum viðskiptavinar
  • Að útlit vöru sé eins og við móttöku og ekki orðið fyrir veðrun, hnjaski eða álíka

 

Þeydal áskilur sér rétt til að hafna skilum á vörum eða neita viðskiptavini um fulla endurgreiðslu séu ofangreind skilyrði ekki uppfyllt. Starfsmenn Þeydals geta ákveðið að taka á móti vöru þó ofangreind skilyrði séu ekki uppfyllt og fær viðskiptavinur þá endurgreitt að hámarki 70% af kaupverði. Athuga skal að endurgreiðsla vegna skila á vöru nær aðeins til kaupverðs vöru en annar kostnaður sem fellur til m.a. vegna flutnings á vöru er á ábyrgð viðskiptavinar.

LÖG UM NEYTENDASAMNINGA OG RAFRÆN VIÐSKIPTI

Hér að neðan eru hlekkir til að nálgast lögin um neytendasamning ásamt lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu.

Lög um neytendasamninga

Lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu

Search

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu tilboð og fréttir beint í póstholfið