Vantar þig aðstoð?
Algengar spurningar
Eru gas útieldstæði örugg?
Er hægt að vera með gas útieldstæði á sólpallinum?
Já, á sama hátt og við notkun á gasgrillum á sólpöllum eða veröndum. Svo lengi sem það loftar vel um eldstæðið og að borðstandurinn sé ekki lokaður þannig að loft eigi greiða leið inn og út úr borðstandinum.
Allir borðstandar frá Eldsteinum eru þannig hannaðir að loft á greiða leið inn og út úr borðstandinum.
Mikilvægt er að fólk eigi greiða leið að borðinu og frá því, þannig að umgengi um það sé sem þægilegust.
Hvað er besta undirlagið fyrir gas útieldstæði?
Best er að vera með það á sléttri steyptri plötu, steinhellum eða timburverönd. Einnig hægt að vera með á jöfnu undirlagi úr möl.
Einnig á grasverönd svo lengi sem almennra öryggisráðstafana er gætt og ekki er hætta á sinubruna.
Ráðlagt er að vera með slökkvitæki nærtækt sem almennt öryggisatriði og á það við hvort sem er til öryggis vegna gas grilla eða gas útieldstæða.
Hvað er BTU mælieining?
BTU stendur fyrir British Thermal Units og lýsir því magni af orku sem þarf til að hækka eða lækka hita á einu pundi af vatni ( 0,45 líter ) um eina gráðu Fahrenheit miðað við sjávarmál. Tæknilega séð getur BTU skýrt út bæði hitahækkun og hitalækkun þó aðallega sé einingin notuð til að skýra hitahækkun. Þessi mælieining hefur verið notuð í margar aldir og er enn. Mælieiningin er notuð til að lýsa varmaorku í gaseldavélum, eldstæðum eða gas hiturum svo eitthvað sé nefnt og er gefið upp með upplýsingum um eldstæði.
Því hærra sem BTU er því meiri hita gefur eldstæðið frá sér. Sem dæmi þá er sagt að 1 BTU gefi frá sér svipaða varmaorku og eitt kerti.
Eldstæði nota mismikið BTU sem getur verið að hámarki (á fullum afköstum) á bilinu 40.000 til 100.000 BTU/klst.
BTU hefur áhrif á umfang eldsins og hæð hans. Einnig hefur áhrif það magn súrefnis sem blandað er við gasið áður en það nær upp í brennarann með loftblandara nippli, (air flow valve), einnig gasþrýstingi og fleirum þáttum.
Ráðlagðir gaskútar fyrir eldstæði
Mælt er með 5 kg plasthylki sem m.a. er selt í N1. Með því gas hylki er þrýstijafnarinn skrúfaður á gashylkið.
Í Funa eldstæðisborðunum er gashylkið inn í borðinu en einnig er hægt að vera með gashylkið annars staðar á útisvæðinu og tengja með gas slöngu í eldstæðið.
Hvað endist gasið lengi fyrir eldstæðið?
Það er tiltölulega einfalt að reikna það út ef þú veist hvað þú ert með mörg kg að gasi í fullum gaskút og þú veist BTU eldstæðispönnunar og tengibúnaði.
Eitt kg. af gasi inniheldur sem nemur 47,932 BTU/klst varmaorku.
Algengastir eru 5. kg og 10. kg gaskútar. Eldstæðin eru með lágþrýstis brennara og ef hann er t.d. gefinn upp 40.000 BTU/klst væri hámarksútkoma með 5 kg. gaskút á 100% flæði um 6 klst. með 239.932 BTU (5 kg x 47.932 BTU) 239.932 / 40.000 sem gefur um 6. klst. Almennt er verið að nota flæði um 30% – 50% af hámarks afkastagetu þannig að líklegra er að 5 kg. gashylki endist 10. – 12. klst.